Magazine Posts Table of Contents
Next post ljóðin

Agnes ritdómur

Posted | Views: 558
Agnes ritdómur

Leikstjórinn er Egill Eðvarðsson og helstu leikarar eru María Ellingsen sem leikur Agnesi Magnúsdóttur, Baltasar Kormákur sem leikur Natan, Gottskálk Dagur Sigurðsson leikur Friðrik Sigurðsson, Hilmir Snær Guðnason leikur Guðmund og Egill Ólafsson leikur sýslumanninn. Agnes er mynd um síðustu aftökuna á Íslandi, en þá er sýnt úr lífi þeirra sem voru tekin af lífi, eða það er farið eftir atburðarrásinni en nokkrum staðreyndum sleppt og sögunni breytt helling til að láta Agnesi líta betur út.
     Í stuttu máli þá er Agnes vinnukona sem á dóttur, hún vinnur sem bústýra hjá sýslumanninum sem er sífellt að reyna að nauðga henni en hún sleppur alltaf naumt undan. Natan kaupir Agnesi sem bústýru fyrir mikinn pening og fer með hana heim á Illugastaði en hann vildi ekki hafa dótturina með og hún var þá send í fóstur til prestsins. Natan heldur framhjá með mörgum konum og kemur svo með nýja konu heim og lætur Agnesi þjóna þeim, hann nauðgar þeim síðan báðum. Konan heitir Sigríður og
Agnes fer og lætur kærasta hennar, Friðrik vita hvar hún er og
hann kemur og lemur Natan með hamri og kveikir síðan í húsinu
og tekur Sigríði. Fyrir þetta eru Friðrik og Agnes dæmd til dauða
og eru þau síðan hálshöggvin.
Þetta gerist á 18 öld, en í myndinni er vikið frá mörgum þekktum 
staðreyndum, eins og til dæmis að Friðrik hafi drepið karlmennina 
á bænum með hníf og að Sigríður og Agnes unnu saman á bænum og voru með í þessu.
Myndin tengist nútímanum til dæmis á þann hátt að konum er ennþá beitt líkamlegu ofbeldi. Í dag eru miklu minni refsingar, þú myndir fara í fangelsi en ekki vera líflátinn.
Mér fannst myndin mjög áhugaverð vegna þess að mér þykir gaman að sjá smá brot inn í líf fólks á fyrri öldum og þetta er mjög gott dæmi um það nema það hversu mikið þau viku frá alvöru staðreyndum en það er áhugavert að skoða hvað gerðist í alvörunni, en í raun var Agnes sek um að vera með í þessu þar sem hún og Sigríður hleyptu Friðriki inn sem drap mennina og þær tóku peninga ásamt Friðriki. Myndin var vel leikin og mjög flottir leikarar í henni. Mér fannst Baltasar t.d. Ná sínu hlutverki mjög vel þegar hann var að leika Natan. Tæknivinnan var fín fyrir utan hvað eldurinn á Illugastöðum var örlítið óraunverulegur. Ég gef myndinni alveg þrjár af fimm stjörnum og ég mæli með henni.